Nýjasta nýtt í tækni
Sífellt auknar kröfur frá kröfuhörðum neytendum ásamt mikill samkeppni milli fyrirtækja er eitthvað sem bílaframleiðendur á heimsmælikvarða þurfa að eiga við hvern einasta dag. Stíll Honda, að vera á meðal frumkvöðlanna er öflug hvatning til vaxtar og þróunar.
Bílaframleiðendur í dag þurfa ekki eingöngu að gæta að því að viðskiptavinirnir verði meira en ánægðir með bílaval sitt. Þeir þurfa einnig að taka tillit til mismunandi laga og reglugerða sem gilda fyrir umhverfi og umferðaröryggi.
Honda hefur tekið þetta mjög alvarlega og stefna okkar er að framleiða og selja vörur sem hafa sem allra minnst áhrif á náttúruna og umhverfið.
Við notum einnig ýmsar aðferðir til að vera í fremstu línu hvað öryggis og tæknibúnað varðar. Í mörg ár hefur Honda rekið sína eigin aðstöðu með átta reynsluakreinum til árekstrarprófa í bænum Tochigi og hún er ein þeirra bestu í heiminum.
Við getum nefnt dæmi um fjöldan allan af brautryðjandi tækninýjungum sem við höfum komið með í gegnum tíðina. Allt frá t.d. Honda Civic CVCC sem kom á amerískan markað árið 1973 og uppfyllti strangar kröfur um útblástur sem settar voru löngu síðar og 30 árum síðar var Honda fyrst til að markaðssetja eldsneytissellubíl sem kallaðist FCX.
Umfang öryggis og tækniþróunar Honda má sjá í vélmenninu ASIMO. Árið 1986 kom í ljós árangur vinnu okkar þegar við þróuðum vélmenni sem gat aðstoðað fólk við daglegt líf. Um aldamótin settum við ASIMO á markað en hann var þá fyrsta vélmennið sem var með liðlegt og raunverulegt göngulag. Síðan þá hefur ASIMO verið endurbættur og þróaður og frá árinu 2004 hefur ASIMO verið meðlimur í Robot Hall of Fame.
Við erum vön því að sjá vörur Honda bæði á landi og á sjó. Einnig klýfur HondaJet þotan háloftin með glæsibrag.
Honda hefur einnig getað nýtt sér þann kost að vera viðriðinn svo mörg mismunandi svið og komið með vel heppnaðar nýjungar sem tengja saman fleiri en eitt af þessum sviðum. Wako Research Center beinir sjónum sínum að verkefnum innan raftækni, líftækni og nýjum hráefnum. Fjögur rannsóknarfyrirtæki í Japan sérhæfa sig í framtíðarvörum með sérstaka áherslu á áreiðanleika og afköst.
Þar sem Honda er með starfsemi um allan heim fer fram rannsóknar og þróunarvinna í fleiri löndum. Honda Research Institute (HRI) var stofnað árið 2003 í Japan, Bandaríkjunum og Þýskalandi en stofnunin beinir sjónum sínum að rannsóknarverkefnum svo sem þróun hátæknivélmenna, notkun nýrra einstaklega léttra hráefna ásamt eldsneytissellutækni. Innan líftæknisviðsins rannsakar HRI möguleika á því að þróa eldsneyti byggð á plöntuhráefnum til að knýja farartækin.




