Umhverfisstefnan
varð stefnan til velgengni
Einn hornsteinanna í stefnu Honda er að vörurnar og framleiðslan hafi sem minnst áhrif á umhverfið. Það er engin tilviljun að Honda var fyrst í heiminum til að selja bíla með minni eldsneytisnotkun og hreinni útblæstri en keppinautarnir höfðu að bjóða. Í mörg ár hefur Honda verið stærsti og afkastamesti vélaframleiðandi í heimi. Það hefur ekki verið auðvelt að ná því marki en samstaðan hefur hjálpað okkur áleiðis, samstaðan með viðskiptavinunum og einnig með samfélaginu í heild hefur án vafa haft mestu áhrifin. Við viljum að Honda sé tekið sem virku og ábyrgðarfullu fyrirtæki á öllum þeim mörkuðum sem við störfum á. Umhverfisbaráttan er langt frá því að vera nýtt fyrirbæri en það sem skapaði Honda sérstöðu meðal annarra fyrirtækja var að við tókum hana og umhverfishættumerkin mjög alvarlega mjög snemma. Allt frá árinu 1966 hóf Honda þróunarstarf sitt með slagorðinu „höldum himinum bláum fyrir börnin“. Listinn yfir brautryðjandi tækninýjungar frá Honda er langur, einnig út frá umhverfissjónarmiðum.
Tímaröðin
1966 Honda kemur þróunarteymi á laggirnar sem fékk það verkefni að draga úr skaðlegum útblástursefnum.
1973 Sparneytinn Civic CVCC, með afgerandi minna magn útblásturslofttegunda en eldri týpur, kemur á markaðinn.
1988 VTEC mótor kemur á markað.
1996 New Dream, drifinn af sólarorku, vinnur World Solar Challenge. Civic GX með gas og rafmagn sem aflgjafa kemur á markað.
1999 Insight er fyrsti hybridbíllinn sem kemur á markað í USA.
2001 Civic Hybrid er kynntur í Japan og er þar með fyrsti fjöldaframleiddi, 5-dyra hybrid bíllinn.
2002 FCX er fyrsti bíllinn með eldsneytissellu sem kemur á markað t.d. í borginni Los Angeles.
2004 Viðurkenning fyrir Accord Hybrid í Bandaríkjunum – fyrstir í heiminum til að nota V6-hybridvél.
2006 Civic Hybrid kemur á markað á norðurlöndunum.




