Enn betri afköst með nýrri tækni
Við kynnum nýjan Civic e:HEV: fullbúinn hybrid-bíl sem býr yfir kraftmiklum akstri á rafmagni, viðbragðsgóðum undirvagni og miklu akstursdrægi.
Civic er sjálfhlaðandi og því þarf aldrei að stinga honum í samband. Hann getur meira að segja endurnýtt umframorku til að hlaða hybrid-rafhlöðuna og með yfir 840 km drægi og öflugu 315 Nm togi þarftu ekki að gera annað en að halla þér aftur og njóta ferðarinnar.