Kæri Honda viðskiptavinur
Fyrir hönd Honda þökkum við það traust sem þú hefur sýnt þeirra framleiðslu með því að festa kaup á þessari bifreið. Hún er framleidd eftir ströngustu kröfum um vandaðan frágang og efnisval og er í afar háum gæðaflokki eins og öll önnur framleiðsla þessara verksmiðja.
Nú er mikilvægt að halda bifreiðinni sem lengst í góðu ástandi og þess vegna hefur framleiðandinn sett fram fyrirmæli um kerfisbundið þjónustueftirlit sem útskýrt er í þessari þjónustuhandbók. Áríðandi er að farið sé eftir þeim fyrirmælum og ábendingum sem þar eru gefin og að þjónustan sé framkvæmd af aðilum sem ráða yfir tæknilegum upplýsingum, sérverkfærum, sérþjálfuðum bifvélavirkjum til að sinna þessari þjónustu og Honda bilanagreini sem tryggir að nauðsynlegar hugbúnaðaruppfærslur séu framkvæmdar. Við hvetjum þig eindregið til að nýta þér þessa þjónustu. Það eykur öryggi þitt á ferðalögum og verðmæti bifreiðarinnar þegar hún eldist.
Með ábyrgðaryfirlýsingu þessari er verið að tryggja betri rétt kaupanda. Askja ber sem seljandi bifreiðarinnar ábyrgð á þeim göllum sem kunna að vera á henni við afhendingu í samræmi við ákvæði laga um lausafjárkaup og eftir atvikum laga um neytendakaup. Til að tryggja enn betur hagsmuni viðskiptavina sinna lýsir Askja, fyrir hönd Honda, því yfir að tilteknir hlutar bifreiðarinnar séu í lagi og haldi fullri virkni í allt að fimm ár. Ábyrgðaryfirlýsing þessi er háð ákveðnum skilyrðum, s.s. að reglubundnu þjónustueftirliti sé sinnt samkvæmt fyrirmælum framleiðanda. Nánari útlistun á skilyrðunum er að finna hér fyrir neðan.
Honda selur ekki eingöngu bifreiðar sem líta vel út í sýningarsal, heldur vill Honda að þú njótir bifreiðarinnar á komandi árum.
Honda styðst við nýjustu kunnáttu á sviði verkfræði og tækni við hönnun og framleiðslu á Honda bifreiðinni þinni og telur að þú verðir þess áskynja í hvert sinn sem þú sest undir stýri. Staðreyndin er sú að Honda verksmiðjurnar eru svo stoltar af framleiðslu sinni að þær telja sig geta boðið eina umfangsmestu ábyrgð sem völ er á.
Í þessari þjónustuhandbók er að finna allar þær upplýsingar um ábyrgð Honda sem þú þarft á að halda. Ennfremur er fjallað um hvenær þú þarft að færa Honda bifreiðina þína til reglubundins þjónustueftirlits til þess að viðhalda gæðum hennar og ábyrgð. Þjónustueftirlit þarf að fara fram samkvæmt fyrirmælum framleiðanda og mælir hann með að eingöngu upprunalegir varahlutir frá Honda séu notaðir í allt viðhald og viðgerðir.
Það sem ábyrgðin nær til
Ábyrgðin nær til Honda bifreiðarinnar þinnar að því gefnu að hún hafi upphaflega verið keypt af viðurkenndum þjónustuaðila Honda og skráð á Íslandi. Ekki er víst að ábyrgð framleiðanda sé í gildi hafi Honda bifreiðin þín ekki verið keypt innan opinbers dreifingarkerfis Honda á evrópska efnahagssvæðinu, EES. Við gætum þurft að fá staðfestingu á kaupunum innan dreifingarkerfsins áður en við getum staðið við ábyrgðina. Bifreiðar sem eru framleiddar fyrir markaði utan EES eru ekki í ábyrgð framleiðanda í landi innan EES.
Skilgreiningar
Sé ekki annað tekið fram í Þjónustuhandbók Honda:
Varahlutur stendur fyrir upprunalegan Honda varahlut sem framleiddur er af Honda til að koma í stað varahlutar sem skipta þarf út í Honda bifreiðum
Forsendur ábyrgðar
Til að uppfylla ábyrgðarskilmálana þarf að fara með Honda bifreiðina þína í reglubundið þjónustueftirlit samkvæmt fyrirmælum framleiðanda.
Eigandi ber kostnað af þjónustueftirliti.
Þjónustusaga
Þú gætir þurft að sýna fram á að þú hafir sinnt viðhaldi á Honda bifreiðinni þinni með réttum hætti. Þú ættir því að halda öllum gögnum um viðhald bifreiðarinnar til haga ásamt öllum kvittunum. Þjónustuaðili skal fylla út skýrslu fyrir reglubundið viðhald í hvert sinn sem þú ferð með Honda bifreiðina þína í þjónustu.
Viðgerðir sem falla undir ábyrgð
Þú ferð með Honda bifreiðina þína ásamt þessari þjónustu-handbók til viðurkennds þjónustuaðila Honda. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Honda geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð, en við mælum með því að þú leitir til þess aðila sem þú keyptir bifreiðina af, ef nokkur kostur er – það hjálpar til ef þeir þekkja til þín og Honda bifreiðarinnar þinnar.
Það eina sem við ráðleggjum þér að gera með reglubundnum hætti er:
- Athuga magn olíu
- Athuga magn bremsuvökva
- Athuga magn kælivökva
- Athuga magn rúðuvökva
- Athuga ljós
- Athuga loftþrýsting í hjólbörðum og ástand þeirra.
Allar þessar upplýsingar og ýmis ráð er einnig að finna í eigandahandbók þinni.
Hér er yfirlit yfir þá þætti sem ábyrgðin nær til.
Til að uppfylla ábyrgðarskilmálana þarf að sinna þjónustueftirliti samkvæmt fyrirmælum framleiðanda. Hefðbundna smurþjónustu þarf að framkvæma á sex mánaða eða 7.500 km fresti, hvort sem fyrr verður ásamt þjónustueftirlit á 15.000 km fresti eða einusinni á ári (hvort sem fyrr kemur).
Áríðandi
Ekki er víst að ábyrgðin sé í gildi ef Honda bifreiðin þín var ekki upphaflega nýskráð af viðurkenndum þjónustuaðila Honda á Íslandi.
Ábyrgðin gildir eingöngu fyrir ökutæki með evrópskri gerðarviðurkenningu.
Honda ábyrgist að nýja bifreiðin þín búi yfir gallalausum efnisþáttum og framleiðslu – skilmálarnir eru tilgreindir á næstu síðum. Viðurkenndur þjónustuaðili Honda annast allar viðgerðir og notar eingöngu nýja eða endurframleidda varahluti til að leysa öll þau vandamál sem upp kunna að koma og falla undir ábyrgðina, þér að kostnaðarlausu. Allir varahlutir sem notaðir eru til viðgerða sem falla undir ábyrgðina eru eingöngu í ábyrgð út upprunalegan ábyrgðartíma bifreiðarinnar.
Ábyrgðartíminn
Ábyrgð á nýrri bifreið er skipt upp í breytileg tímabil. Hún hefst á fyrsta skráningardegi að undanskildum varahlutum eða fylgihlutum sem settir eru í bifreiðina á seinni stigum. Ábyrgðin flyst yfir á næstu eigendur bifreiðarinnar svo lengi sem hún er í gildi.
Til hvaða þátta nær grunnábyrgðin?
Honda ábyrgist íhluti í nýju Honda bifreiðinni þinni í allt að 60 mánuði eða 150.000 km. hvort sem fyrr kemur, frá fyrsta skráningardegi. ATH. Rafbílar (EV) og tvinnbílar (HEV) falla undir grunnskilmála ábyrgðarinnar.
Rafbíll (EV)
Rafmótor, drifrás, rafgeymastæða, rafstýrð aflstýrieining (EPCU), hleðslutæki sem fylgir bílnum (OBC) og allir innri hlutar.
Tvinnbíll (HEV)
Rafgeymastæða fyrir tvinnaflrás, startari og rafall fyrir tvinnaflrás, sjálfskipting og rafmótor þar með talið vélarhús, kúpling og allir innri hlutar.
Undantekningar:
12V rafgeymir: 24 mánuðir
Endurnýjun á kælivökva fyrir loftkælingu: 24 mánuðir
Jafnvægisstilling á hjólum og hjólastilling: 1 mánuður eða
1.500 km - hvort sem fyrr kemur
Sprungur í rúðum: 3 mánuðir eða 1.500 km - hvort sem
fyrr kemur
Hljómtæki og leiðsögukerfi
Upprunalegu hljómtækin og leiðsögukerfin eru í ábyrgð í 36
mánuði eða 100.000 km frá fyrsta skráningardegi, hvort sem
fyrr kemur.
Lakk
Lakk á yfirbyggingu er í ábyrgð í 36 mánuði óháð akstri
frá fyrsta skráningardegi, hvort sem fyrr kemur. Á næstu síðu er að finna sérstakar undantekningar frá þessu.
Ábyrgðarvernd á rýmd lithíum-jóna polymer rafgeymis
Ábyrgð á rýmd lithíum-jóna polymer rafgeymisins („EV rafgeymis“) er til 60 mánaða frá fyrsta skráningardegi eða 150.000 kílómetra, hvort sem fyrr kemur. Ábyrgðin felur í sér vernd falli rýmd rafgeymisins niður fyrir 65% af upphaflegri rýmd hans. Ábyrgðin nær til viðgerða sem nauðsynlegar eru til þess að rafgeymirinn nái aftur 65% af upphaflegri rýmd. Ef unnt er verður gert við íhluti EV rafgeymisins eða þeim skipt út fyrir aðra. Að því búnu verður upphaflega EV rafgeyminum komið að nýju fyrir í bílnum. Ef nauðsynlegt reynist verður EV rafgeyminum skipt út fyrir nýjan eða endurframleiddan lithíum-jóna polymer rafgeymi. Ábyrgð á rýmd lithíum-jóna rafgeymisins felur ekki í sér að viðgerð eða skipti á honum fyrir annan feli í sér að ástand hans verði eins og nýs rafgeymis með 100% rafgeymisrýmd. Ábyrgðin felur hins vegar í sér að rýmd EV rafgeymisins verður í það minnsta 65% af upphaflegri rýmd. Ábyrgð á rýmd lithíum-jóna rafgeymisins tekur mið af þeim undantekningum sem taldar eru upp undir kaflanum „Það sem ábyrgðin nær ekki til.“
Takmörkuð ábyrgð
Samkvæmt ábyrgðarskilmálunum ber Honda eingöngu ábyrgð á viðgerðum eða nýjum, upprunalegum varahlutum frá viðurkenndum þjónustuaðila Honda, ef um efnisgalla eða galla í samsetningu er að ræða. Honda er ekki ábyrgt vegna kostnaðar sem kann að hljótast af því að koma bifreið til þjónustuaðila, kostnaðar vegna annarrar bifreiðar eða kostnaðar sem hlýst af því að vera án bifreiðar meðan á ábyrgðarviðgerð stendur.
Það sem ábyrgðin nær ekki til.
Skemmdir af völdum utanaðkomandi þátta
Dæmi um þetta gæti verið:
- Slæm meðferð, eins og t.d.
- Ef ökumaður ekur yfir götukanta
- Bifreiðin er ofhlaðin
- Iðkaður er hraðakstur
- Bifreiðinni misbeitt
- Óviðeigandi notkun eins og akstur í vatni/sjó og hraðakstur/utanvega akstur
- Atburðir eins og árekstur, eldsvoði, þjófnaður, óeirðir o.s.frv.
- Breytingar, lagfæringar, átt við hluti, o.s.frv.
- Skemmdir eða yfirborðsryð frá umhverfisþáttum eins og súru regni, ofanfalli eða efnum sem dreifast með vindi, (eiturefni, fugladrit, trjákvoða o.s.frv.) salti, hættulegum vegum, hagli, vindi, stormi, eldingum, flóðum, öðrum náttúruhamförum, notkunar slípiefna eða sterkra hreinsiefna við þrif á bílnum.
- Yfirborðsryð út frá steinkasti, rispum á lakki eða öðrum utanaðkomandi skemmdum
- Skemmdir af völdum ófullnægjandi viðhalds, notkunar óupprunalegra varahluta, varahluta af lægri gæðum, röngu eldsneyti eða smurolíu
Ef eðlilegu viðhaldi er ekki sinnt eins og lýst er í eigandahandbókinni
Rangt viðhald eða notkun eldsneytis, olíu eða smurolíu af öðrum gerðum en mælt er með í eigandahandbókinni
Bifreiðar sem notaðar eru við tilteknar akstursaðstæður kunna að þurfa meira viðhald:
- Akstur í miklu ryki eða lofti mettuðu mikilli sjávarseltu
- Akstur á mjög ósléttum vegum/torfæru
- Akstur á mjög stuttum vegalengdum í miklum kulda
- Langvarandi lausagang hreyfils án þess að bifreiðinni sé ekið
- Akstur með dráttaræki eða mikinn hlassþunga
- Akstur leigubifreiða með/án farþega
Eðlilegt slit
Dæmi um eðlilegt slit eru rifur eða rýrnun, eins og upplitun, fölnun eða aflögun, yfirborðsryð á öllum hlutum nema málmplötum á yfirbyggingu bifreiðarinnar og hægfara, eðlilegt slit á vélaríhlutum í hlutfalli við kílómetrastöðu. Ábyrgð gagnvart skrölti og öðrum hávaða í innréttingu og yfirbyggingu er takmörkuð.
Eðlilegur viðhaldskostnaður
Ekki er hægt að gera kröfu um að eðlilegur viðhalds-kostnaður sem upp kann að koma í reglubundu þjónustu-eftirliti falli undir ábyrgð. Endurnýjun á eftirtöldum hlutum telst eðlilegur viðhaldskostnaður:
- Ásþétti
- Burstakol í rafhreyfli
- Eldsneytissía
- Fóðringar
- Frostlögur
- Hemlaborðar
- Hemladiskar
- Hemlaklossar
- Hemlaskálar
- Ísvari og eldsneyti
- Kúpling
- Ljósaperur
- Loftsía
- Olíur og feiti
- Olíusía
- Pakkningar
- Rafgeymissýra
- Rafkerti
- Viftureim
- Þétti
- Þurrkublöð
- Öryggi
Einnig þjónustuskoðanir, þrif og bón, minniháttar lagfæringar og stillingar, hjólastilling og jafnvægisstilling, nema það sé hluti af ábyrgðarviðgerð.
Dráttur á tilkynningu
Komi fram meintur framleiðslugalli á bifreiðinni, ber eiganda hennar að tilkynna Öskju eða viðurkenndum þjónustuaðila það án tafar og framvísa ábyrgðarskírteini um leið. Dráttur á að tilkynna meintan galla getur valdið ógildingu ábyrgðar.
Breyttur kílómetrateljari
Ábyrgðin nær ekki til viðgerða á Honda bifreiðum með kílómetrateljara sem hefur verið breytt eða sem er í því ástandi að ekki er mögulegt að lesa af honum kílómetrastöðuna. Ef skipta þarf um hraðamæli verður viðurkenndur þjónustuaðili Honda fyrst að fylla út skýrslu um endurnýjum kílómetrateljara sem er að finna á bls. 40 í þjónustuhandbók bílsins.
Kostnaðarútlát og tjón
Ábyrgðin nær ekki til hvers konar fjárhagslegs skaða eða annars tjóns. Honda bætir til dæmis ekki missi af notkun bifreiðar, gistikostnað og kostnað vegna bílaleigubifreiðar, dráttarkostnað, ferðakostnað eða tekjutap
Hjólbarðar
Framleiðandi hjólbarðanna ábyrgist hjólbarða bifreiðarinnar.
Breytingar á framleiðslu
Honda og viðurkenndur þjónustuaðili Honda geta hvenær sem er gert breytingar á bifreiðum sem eru framleiddar og/eða
seldar án þess að þurfa að gera sambærilegar breytingar á þeim ökutækjum sem við höfum áður framleitt og/eða selt.
Ábyrgð gagnvart gegnumtæringu
Honda ábyrgist að málmplötur í yfirbyggingu nýju bifreiðarinnar séu lausar við galla, jafnt í efnissamsetningu og framleiðslu, sem geta leitt til gegnumtæringar (að gat opnist í gegnum málmplötuna innanfrá og út) af völdum ryðmyndunar. Undantekningar frá þessu má sjá hér að neðan.
Viðurkenndur þjónustuaðili Honda annað hvort gerir við eða skiptir út málmhlutum sem eru gataðir af völdum ryðmyndunar vegna galla í efnissgamsetningu eða framleiðslu, þér að kostnaðarlausu.
Ábyrgðartími
-
Ryðvarnaábyrgð á burðarvirki 12 ár. Óháð akstri
Innri bretti, innri vélarhlíf, afturhleri, hurðabyrði, botn, hvalbakur, hjólaskálar, þak, hurðastafir, sílsar, styrktarbitar að framan og aftan. - Ryðvarnarábyrgð á undirvagni 10 ár. Óháð akstri
- Fjaðraarmar
- Fjöðrunarbitar
- Driföxlar
- Hemlarör
- Eldsneytis-leiðslur
- Eldsneytistankur
- Fjöðrunargormar
Ábyrgðartíminn hefst þegar bifreiðin er fyrst skráð og ábyrgðin flyst yfir á seinni eigendur svo lengi sem hún er í gildi. Til þess að ábyrgðin haldi gildi þarf að framkvæma þjónustuskoðanir, þ.m.t. sérstakt ryðvarnareftirlit, samkvæmt skilmálum framleiðenda á 12 mánaða eða 15.000 km fresti (hvort sem fyrr kemur).
Það sem ábyrgð gagnvart gegnumtæringu nær ekki til:
Gegnumtæring af völdum ryðmyndunar sem rekja má til ofanfalls, steinkasts, slysa, tjóns, misnotkunar, breytinga á ökutæki eða ætandi farms
Öll gegnumtæring af völdum ryðmyndunar sem ekki verður rakin til galla í efnissamsetningu eða framleiðslu heldur til þess að Honda bifreiðinni þinni hefur ekki verið viðhaldið eins og lýst er í þessari þjónustuhandbók (sjá næstu bls.)
Öll gegnumtæring af völdum ryðmyndunar á öðrum hlutum bifreiðarinnar en málmhlutum yfirbyggingarinnar. Þetta undanskilur sérstaklega útblásturskerfi bifreiðarinnar
Öll gegnumtæring sem rekja má til galla eða ónógra gæða varahluta sem ekki eru seldir eða viðurkenndir af Honda. Notkun notaðra varahluta, eða tjóns sem verður á tengdum hlutum sem leiðir af notkuninni
Öll gegnumtæring af völdum ryðmyndunar sem orsakast af misnotkun, rangri notkun eða ónógu viðhaldi, eins og því að sleppa úr árlegu ryðvarnareftirliti
Öll ryðmyndun á Honda bifreiðinni sem leiðir ekki til gegnumtæringar
Skyldur þínar
Þú ættir með reglubundnum hætti að skoða gaumgæfilega málmfleti á yfirbyggingu Honda bifreiðarinnar þinnar. Ef í ljós koma rispur eða skemmdir af völdum steinkasts á lakki eða hlífðarfilmu ættir þú að láta lagfæra það án tafar.
Við vissar aðstæður ættir þú að verja Honda bifreiðina þína sérstaklega vel gegn ryðmyndun.
Skolaðu undirvagn bifreiðarinnar með hreinu vatni að minnsta kosti einu sinni í mánuði ef þú ekur á saltbornum vegum eða nálægt sjó
Mikilvægt er að halda afrennslisgötum á neðri brúnum yfirbyggingarinnar hreinum
Ef Honda bifreiðin þín verður fyrir tjóni sem getur haft áhrif á lakk yfirbyggingarinnar ættir þú að láta gera við hana eins fljótt og auðið er á viðurkenndu málningar- og réttingaverkstæði skv. kröfum framleiðanda
Ef þú flytur farm sem inniheldur áburð, hálkusalt eða önnur ætandi efni, gakktu þá úr skugga um að þau séu í góðum og lokuðum pakkningum
Við mælum með því að þú komir fyrir aurhlífum aftan við hvert hjól til að sporna við steinkasti
Gakktu úr skugga um að viðurkenndur þjónustuaðili Honda setji stimpil í ryðvarnarskýrslu í þjónustuhandbókinni að afloknu reglubundnu eftirliti
Takmörkuð ábyrgð
Honda ber eingöngu þá skuldbindingu að gera við eða skipta um upprunalega varahluti sem innihalda galla í efnisþáttum eða framleiðslu í gegnum viðurkenndan þjónustuaðila.
Honda er ekki ábyrgt vegna kostnaðar sem kann að hljótast af því að koma bifreiðinni til viðurkennds þjónustuaðila, kostnaðar vegna annarrar bifreiðar eða kostnaðar sem hlýst af því að vera án bifreiðar meðan á ábyrgðarviðgerð stendur.
Ábyrgð á varahlutum
Honda ábyrgist að upprunalegir Honda varahlutir búi yfir galla-lausum efnisþáttum og framleiðslu. Ábyrgðin nær til varahluta sem skipt er út eða seldir eru af viðurkenndum þjónustuaðila Honda.
Viðurkenndur þjónustuaðili Honda gerir við eða skiptir um varahluti til að leysa öll þau vandamál sem upp kunna að koma og falla undir ábyrgðina. Hafi hann sett varahluti í bifreiðina verður gert við hana eða þeim skipt út fyrir nýja. Varahlutir og vinna eru þér að kostnaðarlausu. Hafi einhver annar sett varahlutina í bifreiðina verður gert við þá eða þeim skipt út fyrir nýja en þú greiðir fyrir vinnuna.
Ábyrgðartími
Varahlutir sem settir eru í bifreiðina af viðurkenndum þjónustuaðila Honda samkvæmt ábyrgðarviðgerð eru í ábyrgð einungis það sem eftir lifir af upphaflegum ábyrgðartíma bifreiðarinnar. Varahlutir seldir og settir í bifreiðina af viðurkenndum þjónustuaðila Honda þegar ábyrgðartími hennar er útrunninn eru eftir sem áður í ábyrgð í 24 mánuði frá ísetningu, óháð akstri.
Það sem ábyrgðin nær ekki til
Tjón eða ryðskemmdir af völdum slysa, vanhirðu, ófaglegra viðgerða, lagfæringa, misnotkunar, breytinga eða árekstra
Tjón eða yfirborðsryð af völdum umhverfisþátta eins og steinkasts, súrs regns, ofanfalls, (t.d. eiturefni, trjákvoða o.s.frv.), salts, slæmra vega, hagléls, vinds, storms, eldinga, flóða eða annarra náttúruhamfara. Þjófnaðar, fuglaskíts eða öðrum ætandi efnum. Eðlilegt slit, rifur eða rýrnun, eins og upplitun, fölnun eða aflögun
Varahlutir í Honda bifreið með kílómetrateljara sem hefur verið breytt eða sem er í því ástandi að ekki er mögulegt að lesa kílómetrastöðuna
Varahlutir sem eru notaðir í öðrum tilgangi en þeir voru hannaðir fyrir
Varahlutir sem skemmast vegna rangrar ísetningar
Varahlutir sem ekki er hægt að sanna hvenær voru keyptir eða settir í Honda bifreiðina þína
Varahlutir sem eru ekki viðurkenndir af Honda
Gallar sem má rekja til notkunar slípiefna eða sterkra hreinsiefna við þrif á bílnum.
Viðgerðir sem falla undir ábyrgð
Þú ferð með Honda bifreiðina þína eða upprunalegan varahlut, ásamt þessari þjónustuhandbók, sölukvittun og dagsetningu ísetningar, til viðurkennds þjónustuaðila Honda.
Takmörkuð ábyrgð
Samkvæmt ábyrgðarskilmálunum ber Honda eingöngu ábyrgð á viðgerðum eða nýjum, upprunalegum varahlutum hjá viðurkenndum þjónustuaðila Honda, ef um efnisgalla eða galla í samsetningu er að ræða. Honda er ekki ábyrgt vegna kostnaðar sem kann að hljótast af því að koma bifreið til þjónustuaðila, kostnaðar vegna annarrar bifreiðar eða kostnaðar sem hlýst af því að vera án bifreiðar meðan á ábyrgðarviðgerð stendur.
Skýrslur um reglubundið viðhald
Viðurkenndur þjónustuaðili Honda eða viðgerðaraðili eiga að undirrita þjónustuskýrslurnar á næstu síðum. Að lokinni undirritun sýnir hvert eyðublað að viðhald hefur farið fram. Þú ættir að geyma þjónustuhandbókina ásamt kvittunum, viðgerðarbeiðnum og reikningum, í hanskahólfi Honda bifreiðar-innar þinnar og afhenda það næsta eiganda, seljir þú bifreið-ina.
Honda samþykkir ekki kröfu um ábyrgð á ábyrgðartímanum ef viðhaldi er ábótavant.