Nýr Honda ZR-V

Gæði sem þú þekkir

Verð frá 7.890.000 kr.

  • Hybrid
  • 5 ára/150.000 km. ábyrgð
  • 184 hestöfl
  • 1.322 lítra skottrými
  • Bakkmyndavél
  • Honda SENSING akstursaðstoðarkerfi

Nýr ZR-V sameinar stíl, kraftmikla aksturseiginleika, nýstárlegt öryggi og einstök þægindi. Hann notar blöndu af rafmótorum og bensínvél og er búinn endurnýjandi hemlakerfi sem skilar afgangsorku sem fyllir á rafhlöðu bílsins. Áreiðanlegur en snjall.

Fullur kraftur og aukin akstursánægja

ZR-V er hannaður með sportlegum undirvagni og býður upp á lipra aksturseiginleika en hjartað í ZR-V er e:HEV drifrásin.

Hægt er að auka kraftinn með Sport akstursstillingunni en auk þess veitir snjóstilling bestu mögulegu akstursupplifun við vetraraðstæður.

Nýr Honda ZR-V kemur í Advance útfærslu

Hágæða efni og þægindi

Fjölmörg hleðslutengi og geymslupláss í farþegarýminu gera ZR-V að þægilegum stað til að vera á. Hituð fram- og aftursæti með leðuráklæði, ásamt stemningslýsingu, tryggja hámarksþægindi.

Tæknilegir eiginleikar

Nýr ZR-V er með stafrænum upplýsingaskjá fyrir enn betra öryggi. Advance útfærslan er með framhliðarskjá sem miðlar mikilvægum upplýsingum.

Nýjasta kynslóð Honda CONNECT upplýsinga- og afþreyingarkerfisins, með snjallsímaþættingu í gegnum Apple CarPlay og Android Auto, er staðalbúnaður í öllum gerðum.

5 ára/150.000 km ábyrgð

Honda bílar keyptir hjá Öskju eru með 5 ára eða 150.000 km. ábyrgð, hvort sem kemur á undan.

Honda SENSING - háþróuð akstursaðstoðarkerfi

  • Kerfið greinir mögulega hættu á árekstri og varar þig við og dregur úr hraða

  • Ef bíllinn fer út fyrir akrein án stefnuljóss fer viðvörunarkerfi í gang

  • Myndavél á framrúðu greinir hvort bíllinn sé að fara af veginum og beitir smávægilegum stýrisleiðréttingum ef þörf krefur

  • Viðheldur ákveðnum aksturshraða og fjarlægð milli bíla