Þegar ný bifreið er afhent til viðskiptavinar fær hann í leiðinni afhenta þjónustubók sem jafnframt er ábyrgðarskírteini bifreiðarinnar.
Nauðsynlegt er að þjónustubókin sé stimpluð af viðurkenndum þjónustuaðila Öskju með kílómetrastöðu og dagsetningu í hvert sinn sem þjónustuskoðun eru innt af hendi.
Þjónustuskoðanir eru byggðar á aðgerðarferli frá framleiðanda sem nauðsynlegt er að inna af hendi á 15.000 km fresti eða í síðasta lagi einu sinni á ári. Á milli þjónustuskoðana eða á 7.500 km fresti þarf að skipta um vélarolíu og olíusíu.
Þjónustuskoðanir eru inntar af hendi til að hámarka endingu allra slit, véla og gírkassa/sjálfskiptinga hluta, og þar með auka enn frekar á þá ánægju sem fylgir því að aka nýrri bifreið
Hafa ber í huga að komi upp galli í bifreið innan ábyrgðartíma sem rekja má til þess að þjónustuskoðanir hafi ekki verið inntar af hendi innan tilsettra marka getur framleiðandi hafnað bótum.